Sveitarfélögin
Nýskráning
Hjálp
Fréttir
17.7.2007 17:11:08
Fyrsta skrifstofuhótel á Íslandi var opnað á Selfossi fimmtudaginn
24 febrúar. Rekstur skrifstofuhótels er samvinnuverkefni Sunnan3 -
rafræns samfélags, Verkfræðistofu Suðurlands og Tölvu- og
rafeindaþjónustu Suðurlands (TRS). Skrifstofuhótelið er staðsett í
húsnæði Verkfræðistofu Suðurlands í 'Kjarnanum' á Selfossi, þar sem
áður voru skrifstofur KÁ.
Markmiðið með rekstri skrifstofuhótels er að koma til móts við þarfir íbúa svæðisins sem starfa á höfuðborgarsvæðinu, en vilja vinna 2-3 daga í viku í heimabyggð. Um er að ræða fullkomna skrifstofuaðstöðu fyrir 5 manns, með öflugu háhraðasambandi og hvetjandi vinnuumhverfi.
Fjöldi gesta kynnti sér aðstæður og þjónustu skrifstofuhótelsins á sérstakri opnunarathöfn s.l. fimmtudag og voru þeir ánægðir með þessa nýjung. Orri Hlöðversson bæjarstjóri í Hveragerði og fromaður verkefnisstjórnar Sunnan3 bauð gesti velkomna, Árni Magnússon félagsmálaráðherra flutti ávarp og Sigurður Tómas Björgvinsson verkefnisstjóri Sunnan3 og Páll Bjarnason framvkæmdastjóri Verkfræðistofu Suðurlands kynntu hugmyndina á bak við rekstur skrifstofuhótels.

Þann 30. júní s.l. var opnað nýtt skrifstofuhótel í Hveragerði. Það
er Byr Skrifstofuþjónusta sem mun annast rekstur
skrifstofuhótelsins að Austurmörk 4, en húsnæðið hefur allt verið
endurbyggt á glæsilegan hátt. Um er að ræða annað hótelið af þremur
sem ætlunin er að opna innan vébanda Sunnan3 verkefnisins. Fyrsta
hótelið var opnað á Selfossi í febrúar s.l. og í haust stendur til
að opna þriðja hótelið í Þorlákshöfn.
Markmiðið með uppbyggingu skrifstofuhótela er að koma til móts við þarfir íbúa sem starfa á höfuðborgar- svæðinu, en vilja og hafa tök á því að vinna hluta vinnutíma síns í heimabyggð. Um er að ræða fullkomna skrifstofu-aðstöðu með öflugu háhraðasambandi og hvetjandi vinnuumhverfi. Kostir skrifstofuhótels eru augljósir fyrir starfsfólk sem þarf að sækja vinnu fjarri heima-byggð. Hér er einnig um að ræða mögu-leika á hagræðingu fyrir vinnuveitendur í lækkun skrifstofukostnaðar. Að auki getur skrifstofuhótel haft jákvæð samfélagsleg áhrif þar sem það getur dregið úr umferð í tengslum við atvinnusókn, mengun og slysahættu.

Eins og sjá má hefur Sunnan3 vefurinn fengið andlitslyftingu með
nýrri heimasíðu. Opnun heimasíðunar og meðfylgjandi breytingar eru
fyrsta skrefið í átt að rafrænu þjónustutorgi sem er eitt af
menginverkefnum Sunnan3. Það er hugbúnaðarfyrirtækið Idega sem
annast alla þróun og hönnun við heimasíðuna og þjónustutorgið. Til
að byrja með mun heimasíðan fyrst og fremst hafa það hlutverk að
kynna Sunnan3 verkefnið og veita upplýsingar um stöðu mála. Ekki
verður því um neina gagnvirka þjónustu um að ræða fyrr en síðar í
sumar. Þá munu íbúar geta fengið sín eigin svæði gagnvart
sveitarfélögunum og notfært sér ýmsa rafræna þjónustu sem ekki
hefur verið í boði áður.
17.7.2007 17:11:07
Ákveðið hefur verið að Sunnan3 leggi til fjármagn og faglega
ráðgjöf í samstarfsverkefni grunnskólanna þriggja í Árborg um
rafræna skráningu skólamáltiða á netinu. Um er að ræða aukna
þjónustu við forleldra og nemendur á grunnskólastigi í framhaldi af
því að farið var að bjóða upp á heitan mat í hádeginu í
grunnskólunum í Árborg. Samið hefur verið við Vef hf um þróun á
skráningarkerfi fyrir internetið þar sem foreldrar geta skráð börn
sín í mat og morgunhressingu til styttri eða lengri tíma. Vonast er
til að af þessu hljótist nokkuð hagræði fyrir nemendur, foreldra og
starfsfólk skólanna, því þar með þarf ekki lengur að senda nemendur
með miða heim og handvinna svo skráningunna í skólanum. Gert er ráð
fyrir að kerfið verði tilbúið til notkunar í lok nóvember þannig að
foreldrar geti notfært sér rafræna skráningu fyrir vorönnina.
Jafnframt var ákveðið að boðið verði upp á sömu rafrænu þjónustu í
Hveragerði og Ölfusi þegar boðið verður upp á skólamáltíðir þar á
komandi skólaári.
17.7.2007 17:11:07
Sunnan3 - verkefni um rafrænt samfélag, óskar eftir samstarfsaðilum
um tilraun til reksturs þriggja skrifstofuhótela í sveitarfélögunum
Árborg, Hveragerði og í Ölfusi.
Markmiðið með uppbyggingu skrifstofuhótels er að koma til móts við þarfir íbúa sveitarfélaganna þriggja sem starfa á höfuðborgarsvæðinu, en vilja og hafa tök á að vinna hluta sinnar vinnu í heimabyggð. Leitað er eftir fullbúinni skrifstofuaðstöðu með öflugu háhraðasambandi. Æskilegt er að húsnæðið sé rekið í tengslum við annan rekstur til að tryggja lifandi starfsumhverfi og einnig til að halda niðri rekstrarkostnaði. Ekki er skilyrði að sami aðilinn sjái um rekstur hótelanna þriggja.
Kostir skrifstofuhótels eru augljósir fyrir starfsfólk sem þarf að sækja vinnu fjarri heimabyggð, en einnig er stefnt að hagræðingu fyrir vinnuveitendur, einkum í lækkun skrifstofukostnaðar.
Áætlað er að tilraunin standi í eitt ár og að þeim tíma liðnum verður gerð úttekt á árangri hennar. Sunnan3 veitir fjárstuðning til rekstursins á meðan að á tilrauninni stendur, en markmiðið er að í framtíðinni verði skrifstofuhótelin sjálfbærar rekstrareiningar.
Hér má finna kröfulýsingu vegna skrifstofuhótels.

17.7.2007 17:11:06
Sunnan3 hefur komið á samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur (OR) um
þarfagreiningu og hugsanlega uppbyggingu rafrænnar grunngerðar á
starfssvæði verkefnisins. Til að byrja með mun OR aðstoða Sunnan3
við tæknilega þarfagreiningu vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á
grunnnetinun. Ákveðið var að stofna sérstakan ráðgjafahóp um
tæknileg málefni verkefnisins og mun Þorleifur Finnsson
framkvæmdastjóri nýsköpunarsviðs vera fulltrúi OR í hópnum. Aðrir í
hópnum verða Ásbjörn Blöndal framkvæmdastjóri framkvæmda- og
veitusviðs Árborgar og Júlíus Pálsson framkvæmdastjóri TRS á
Selfossi, en fyrirtækið hefur verið aðili að Sunnan3 frá upphafi.
Orkuveitan er tilbúin til þess að kalla til sérfræðinga á ýmsum
sviðum við þessa þarfagreiningu. Litið verður á vinnu OR sem
framlag þeirra til verkefnisins, án frekari skuldbindinga af hálfu
Sunnan3.
17.7.2007 17:11:04
Rafrænt þjónustutorg fyrir íbúa Árborgar,
Hveragerðis og Ölfus var opnað í dag. Með rafrænu þjónustutorgi
eignast íbúar sína eigin vefsíðu hjá sveitarfélaginu. Mjög einfalt
er að sækja um notendanafn og lykilorð, og til þess að tryggja
fullkomið öryggi fá íbúar lykilorðin send í netbankann sinn. Þeir
sem ekki hafa aðgang að netbanka fá upplýsingarnar sendar með
bréfi. Á þjónustutorginu geta íbúar kannað stöðu fjármála og haldið
utan um sín samskipti við sveitarfélagið, séð nýjustu skilaboð og
spjallað beint við ákveðna starfsmenn. Einnig hafa þeir beinan
aðgang að atburðadagatali, veðrinu, fjölmiðlum og annarri gagnlegri
þjónustu.
Nú geta íbúar sent inn umsóknir með gagnvirkum hætti beint af þjónustutorginu. Allur ferill og afgreiðsla umsóknarinnar er sjálfvirkur sem sparar tíma við innslátt, vinnslu og flýtir fyrir ákvarðanatöku. Til að byrja með verður hægt að senda inn umsóknir um grunnskóla, frístundarheimili, skólamáltíðir, og leikskóla
Hér er um að ræða tímamót í rafrænum samskiptum sveitarfélaga og íbúa. Það sem greinir þetta þjónustutorg frá sambærilegum kerfum er að þarfir íbúanna eru settar í forgang og þeir fá þannig fullkomið sjálfsafgreiðslukerfi í hendurnar.17.7.2007 17:11:04
Sunnan3 áformar að gefa íbúum kost á að sækja námskeið í almennri
tölvunotkun og notkun rafræns þjónustutorgs á næstunni. Námskeiðin
verða haldin í samvinnu við Fræðslunet Suðurlands, og er þeim fyrst
og fremst ætlað að hjálpa þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í
tölvunotkun og öðrum þeim sem telja sig á grunnþjálfun í
tölvunotkun að halda. Meðal þess sem notendur ættu að geta eftir
námskeiðið er að senda tölvupóst, ferðast um internetið, notað
heimabanka, skrifað bréf í Word o.fl. Í tengslum við námskeiðin
verður gefin út sérstök kennslubók um tölvunotkun fyrir byrjendur
þar sem m.a. verða leiðbeiningar um notkun rarfæns þjónustutorgs
Sunnan3. Íbúar geta óskað eftir að fá bókina senda með því að skrá
sig inn í þjónustutorgið og senda skilaboð til síns
sveitarfélags.
17.7.2007 17:11:08
Skrifstofuhótel opnað á Selfossi